Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 71. fundur,  1. mars 2023.

safnalög o.fl.

741. mál
[16:02]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á safnalögum, lögum um Þjóðminjasafn Íslands og lögum um Náttúruminjasafn Íslands. Breytingar sem gerðar eru á þessum þrennum lögum þjóna tveimur meginmarkmiðum. Annars vegar að stuðla að auknu samráði milli stjórnvalda og fagfólks í safnamálum, hins vegar að samræma skipunartíma forstöðumanna í höfuðsöfnunum þremur; Listasafni Íslands, Þjóðminjasafni Íslands og Náttúruminjasafni Íslands.

Tilefni lagabreytinganna eru samráðsfundir milli ráðherra og safnafólks síðasta haust. Ég efndi þá til samráðsfunda við nokkur fagfélög í safnageiranum. Fundina sóttu fulltrúar frá Félagi fornleifafræðinga, Félagi íslenskra safna- og safnmanna, Félagi þjóðfræðinga á Íslandi, Íslandsdeild alþjóðaráðs safna og Sagnfræðingafélagi Íslands. Á fundunum ræddum við um þessi tvö meginmarkmið sem lagabreytingunni er ætlað að ná fram. Á þeim lögðu fulltrúar fagfélaganna áherslu á nauðsyn þess að koma á reglubundnu samráði safnafólks annars vegar og ráðherra og stjórnvalda hins vegar. Jafnframt var á þessum fundum bent á ósamræmi í skipunartíma forstöðumanna höfuðsafnanna þriggja. Sú breyting hafði verið gerð á ráðningartíma safnstjóra Listasafns Íslands fyrir um áratug að ráðningin gæti samtals verið í tíu ár samfleytt. Þetta var gert með setningu myndlistarlaga, nr. 64/2012, sem tóku gildi 1. janúar 2013. Fyrirmynd var því til að þessu leyti meðal eins forstöðumanns af þremur þegar kemur að höfuðsöfnunum. Sambærilegt ákvæði hafði reyndar verið í gildi í eldri lögum um Listasafn Íslands eða allt frá árinu 1988.

Virðulegur forseti. Með breytingunni á safnalögum er lagt til að ákvæði verði bætt við 7. gr., sem fjallar um safnaráð. Í því verði kveðið á um að árlega samráðsfundi ráðherra, fulltrúa höfuðsafna og fulltrúa þeirra fagfélaga sem koma að starfi safnanna. Fundað skuli a.m.k. árlega en jafnframt opnað fyrir þann möguleika að funda oftar ef ástæða þykir til. Lagt er til að safnaráð boði til fundanna, setji reglur um fyrirkomulag þeirra, dagskrá og þátttakendur sem ráðherra samþykki. Með samþykkt þessarar breytingar á safnalögum er stuðlað að virkara samráði og byggt undir betri ákvarðanatöku á málefnasviðinu.

Hin breytingin sem lagt er til að verði gerð með frumvarpinu snýst, eins og áður segir, um skipunartíma tveggja forstöðumanna hjá Náttúruminjasafni Íslands og Þjóðminjasafni Íslands. Í viðeigandi lög verði bætt við ákvæði sem hljóðar svo: „Endurnýja má skipun forstöðumanns einu sinni til næstu fimm ára.“ Hér er verið að samræma skipunartíma forstöðumanna eins og áður segir og má rekja þá þróun allt til ársins 1988. Nýverið hafa verið gerðar sambærilegar breytingar að því er varðar forstöðumann Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Ákvæði þess efnis var sett inn í kvikmyndalög árið 2018 og um þjóðleikhússtjóra hefur slíkt ákvæði verið í gildi síðan árið 2020.

Virðulegur forseti. Safnastarf á Íslandi er í miklum blóma um þessar mundir. Þar eru fremst í flokki höfuðsöfn þjóðarinnar; Listasafn Íslands, Náttúruminjasafn Íslands og Þjóðminjasafn Íslands. Listasafnið er stærsta safn íslenskrar myndlistar og þar eru stöðugt í gangi sýningar sem höfða til allrar þjóðarinnar, hvort sem er í glæsilegum húsakynnum safnsins við Laufásveg eða í öðrum söfnum. Skammt er t.d. síðan ég opnaði mjög skemmtilega sýningu í Safnahúsinu við Hverfisgötu sem Listasafnið stendur að. Sýningin kallast Viðnám og er fyrir börn á öllum aldri. Hún brúar bilið milli myndlistar og vísinda. Á Náttúruminjasafninu er verið að undirbúa flutning í nýtt húsnæði safnsins á Seltjarnarnesi þar sem góð aðstaða verður til sýninga og til að taka á móti gestum. Safnið er sömuleiðis með sýninguna Vatnið í náttúru Íslands, í Perlunni, sem er fjölsótt bæði af heimafólki og erlendum ferðamönnum. Á Þjóðminjasafninu er dregin upp skýr og heilleg mynd af menningarsögu Íslendinga með grunnsýningunni Þjóð verður til, auk þess sem þar eru ávallt í gangi merkilega sérsýningar sem höfða til mismunandi hópa.

Breytingarnar sem lagðar eru til með frumvarpinu munu stuðla að því að samráð muni aukast í safnageiranum og verða eðlilegur hluti af umræðu um málefni safna. Sömuleiðis mun samræming á skipunartíma forstöðumanna leiða til þess að endurnýjun og nýbreytni verði gert hærra undir höfði í safnamálum.

Virðulegur forseti. Frumvarp þetta er samið í náinni samvinnu ráðuneytis og safnafólks. Það var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda og umsóknaraðilar fögnuðu þessum breytingum. Ég geri það heils hugar líka og legg til að málinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.