Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 71. fundur,  1. mars 2023.

gjaldtaka vegna nýtingar á vindi, sameiginlegri auðlind þjóðarinnar, til raforkuframleiðslu.

26. mál
[16:24]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Þar sem aðrir þingmenn eru jafn spenntir og ég að spyrja hv. þingmann spjörunum úr þá hef ég lítinn tíma. Ég er með tvær spurningar sem mig langar til að beina til hv. þingmanns en vil byrja á að þakka honum fyrir ræðuna.

Í greinargerð með þessu frumvarpi segir, með leyfi forseta:

„Á vegum stjórnvalda er nú unnið að stefnumótun í málaflokknum og er verkefnið skilgreint í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar.“

Fyrri spurningin sem mig langaði til að beina til hv. þingmanns er, af því að það vekur athygli að að baki þessu frumvarpi er eingöngu þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs: Hvers vegna er ekki ríkisstjórnin að leggja fram þetta mál? Það er fyrri spurningin sem mig langar til að beina til hv. þingmanns. Og hvort sú staðreynd sé merki þess að þingflokkur hv. þingmanns sé ekki að ná miklu fram í þessu stjórnarsamstarfi af því sem jafnvel hefur verið ákveðið að ná skuli fram.

Hin spurningin sem mig langar að beina til hv. þingmanns er: Hvaða væntingar hefur hann til þess að það gangi betur að innheimta þetta gjald en t.d. hefur gengið að innheimta gjald vegna fiskeldis?