153. löggjafarþing — 72. fundur,  6. mars 2023.

aðgerðir stjórnvalda gegn verðbólgu.

[15:24]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður nær betri hljómgrunni með því að koma alltaf með þessa sömu ræðu eða hækka röddina, ég veit það ekki. En staðreyndin er sú að á síðasta ári þá komum við með 24% hækkun á húsnæðisbótum til þeirra sem verst hafa það á húsnæðismarkaði, hækkuðum vaxtabætur og breikkuðum þann hóp sem tekur til þess. Við hækkuðum barnabætur þannig að það er búið að gera fjölmargt. Hv. þingmaður veit það þrátt fyrir að hún komi hér upp reglulega og haldi því fram að hér sé ekkert gert af því að hér sé einhver sérstök tegund af ríkisstjórn sem kalli á aðgerðaleysi, sem er náttúrlega endemis vitleysa. Og af því að hv. þingmaður byrjaði að tala um vexti í fyrirheitna landi hv. þingmanns, Evrópusambandinu, þá eru vextir þar fjölbreyttir og vandamálin gríðarlega ólík frá norðri til suðurs, austri til vesturs, alveg gríðarlega. Það er ekki neitt „kvikk fix“ að fara að flytja inn einhverjar landbúnaðarvörur með lægri tollum frá Suður-Evrópu eða Austur-Evrópu eða frá Asíu þegar við erum að takast á við loftslagsmál, vörur frá löndum þar sem laun eru miklu lægri, (Forseti hringir.) þar sem dýravernd er allt önnur og á sama tíma er matarkarfan samkvæmt Eurostat milli 12 og 13% á Íslandi, með því lægsta, og innlendar vörur hafa hækkað hvað minnst. (Forseti hringir.) Það væri ágætt að hv. þingmaður væri með staðreyndir í staðinn fyrir að halda alltaf sömu ræðuna hérna.

(Forseti (BÁ): Forseti verður að minna bæði hv. fyrirspyrjendur og hæstv. ráðherra á það að ræðutími er takmarkaður í óundirbúnum fyrirspurnum, bæði í fyrirspurnum og svörum.)