viðbrögð stjórnvalda við loftslagsáætlun ESB.
Herra forseti. Ég hef áður spurt hæstv. utanríkisráðherra út í þá ógn sem stafar af yfirvofandi löggjöf Evrópusambandsins sem mun í raun rústa stöðu Íslands í flugmálum. Ég heyri að hæstv. ráðherra hefur tekið undir þær áhyggjur. Í gær var hæstv. ráðherra í viðtali við Morgunblaðið, a.m.k. mbl.is, og sló þar í og úr og vakti eiginlega fleiri spurningar en svarað var. Hæstv. ráðherra sagði að það hefði verið farið í fordæmalaust átak til að hafa áhrif á löggjöf ESB, m.a. verið haldnir yfir 100 fundir með embættismönnum og hæstv. ráðherra hefði sjálfur hitt á þriðja tug utanríkisráðherra. En hver varð árangurinn af þessu fordæmalausa átaki og öllum þessum fundum? Hvað hefur fengist á móti? Hæstv. ráðherra segir að þetta sé erfitt viðureignar og erfitt að fá undanþágur vegna þess að þetta sé hluti af loftslagsáætlun Evrópusambandsins, sem Ísland hefur illu heilli elt þrátt fyrir að þetta eigi ekki við um íslenskar aðstæður, til að mynda þessi tilraun til að neyða fólk inn í járnbrautarlestir fremur en að fara í flugvélar, sem hentar okkur augljóslega ekki. Svo segir hæstv. ráðherra líka að enginn mótmæli lengur áhrifunum á Ísland. Ég er ekki alveg viss um að þetta sé rétt. Hingað kom einhver Slóvaki, hæstv. forseti verður að fyrirgefa, ég man ekki hvað hann heitir, Milo, held ég. Alla vega heldur þessi maður utan um þessi mál öll. Þessi Slóvaki sem hefur örlög Íslands í hendi sér gaf ekkert til kynna um að það væri skilningur á afstöðu Íslands til þessara mála. Hæstv. ráðherra segir, með leyfi forseta:
„Við tökum þetta fasa fyrir fasa og við erum að gera allt hvað við getum til að ná fram breytingum og verðum í raun að vona það besta. Ef það tekst ekki þá er í raun ekki tímabært að fabúlera um það hvað gerist næst.“
Herra forseti. Er ekki einmitt löngu orðið tímabært (Forseti hringir.) að hæstv. ráðherra ekki aðeins fabúleri heldur segi okkur hvað gerist næst?