viðbrögð stjórnvalda við loftslagsáætlun ESB.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Ég er eðli máls samkvæmt ekki alveg sammála því að ég hafi slegið úr og í í þessu viðtali. Hér er spurt um hvað gerist næst og sagt að ég skuldi svör við þessu máli einhvern veginn í heild sinni. Staðreyndin er sú að við erum í miðju verki. Málinu er ekki lokið Evrópusambandsmegin og ég stend algjörlega við að um er að ræða stærsta átak sem við höfum farið í, við byrjuðum fyrr og erum í raun ekki enn þá komin á þann stað þar sem við erum venjulega að óska eftir aðlögunum eða ákveðnu mótvægi áður en mál eru tekin upp í sameiginlegu EES-nefndina. Það er ekki rétt, og ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður sé að vísa í Savkovic, að hann haldi á málinu einn og örlög okkar séu í hans höndum.
Ég sagði hins vegar það sem er satt og rétt í þessu viðtali, að ef engar breytingar verða á málinu þá mun það hafa miklar afleiðingar fyrir okkur og þess vegna leggjum við svo mikla áherslu á málið. Í lagasetningarferlinu hjá Evrópusambandinu náðust hins vegar fram breytingar sem skipta okkur vissulega máli, eins og þær að Evrópusambandið muni niðurgreiða verðmun á venjulegu flugvélaeldsneyti og vistvænu eldsneyti sem við gætum mögulega framleitt hér og þarf þá ekki að borga ETS-gjöld af því síðar, og sömuleiðis að gerð verði úttekt á heildaráhrifum af þessu öllu saman. Það dugir okkur hins vegar ekki og þess vegna erum við ekki hætt í okkar vinnu. Við erum þar af leiðandi í miðju verki og leggjum okkur fram við að ná fram þeim breytingum sem við teljum sanngjarnar og eðlilegar. Að okkar mati erum við ekki að biðja um hluti sem eru ósanngjarnir eða óeðlilegir og erum ekki heldur að biðja um að vera stikkfrí í málinu. Við erum að benda á að það að reikna út meðaltal og yfirfæra það á allt málið sé ekki tæmandi og ekki nægilega góð nálgun (Forseti hringir.) vegna þess að jaðaráhrifin eru slík hjá okkur, og við köllum eftir því að við þeim sé brugðist.