viðbrögð stjórnvalda við loftslagsáætlun ESB.
Herra forseti. Það er rétt hjá hæstv. ráðherra að það að málið verði skoðað, áhrif þess, löngu eftir að það hefur tekið gildi dugar okkur ekki. En hvað hafa íslensk stjórnvöld fengið fram eftir þessa hundrað fundi og 20–30 fundi með utanríkisráðherrum að auki? Það er ekki að heyra að það sé neitt. Það blasir við að það verður krafa um að þetta klárist fyrir áramót þegar þessar reglur allar eiga að taka gildi í Evrópusambandinu og þá finnst mér áhyggjuefni ef hæstv. ráðherra getur ekki sagt hreint út að við munum ekki innleiða þetta ef það skaðar íslenska hagsmuni og aðstæður okkar hér. Hæstv. ráðherra sagði í fyrrnefndu viðtali að það væri ekki tímabært að tala um að hafna þessum hluta löggjafarinnar. Er ekki tímabært að tala um að hafna þessum hluta löggjafarinnar ef ekki verður komið til móts við okkur? Hvernig nálgast íslensk stjórnvöld þessar viðræður ef þau treysta sér ekki einu sinni til að segja það hreint út (Forseti hringir.) að ef ekki verði komið til móts við íslenskar aðstæður þá munum við hafna þessu?