greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.
Virðulegur forseti. Ég vil taka heils hugar undir með hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni. Auðvitað á að birta þessar upplýsingar. Auðvitað á að fá að leggja þessa fyrirspurn fram. Við setjum hér mikilvægt fordæmi í dag, hversu langt er meiri hluti þessa þings tilbúinn að ganga til að virða rétt þingmanna til að leggja fram fyrirspurnir. Hv. þingmenn meiri hlutans eru hér að setja fordæmi, við skulum hafa það hugfast. Eins finnst mér mikilvægt að geta þess að öll forsætisnefnd, að forseta undanskildum, er á þeirri skoðun að birta eigi þessa greinargerð. Hér er tækifæri fyrir þingmenn forsætisnefndar sem greiddu atkvæði um það nú í morgun að þetta skyldi birta til að sýna það í verki að þetta skuli birta. Ég hvet alla hv. þingmenn til að greiða atkvæði með þessari tillögu hv. þingmanns.