greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.
Virðulegur forseti. Greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol var ekki send Alþingi til umsagnar og er því ekki undanþegin aðgangi samkvæmt ákvæðum laga um Ríkisendurskoðun þar að lútandi. Samkvæmt upplýsingalögum teljast gögn ekki til vinnugagna þegar þau hafa verið afhent öðrum en greinargerðin var ekki afhent til neinnar frekari vinnu við hana af hálfu Alþingis heldur var fráfarandi settur ríkisendurskoðandi einfaldlega að skila verkinu af sér. Síðan þá hefur það inntak sem var sent þinginu fallið undir stjórnsýslu Alþingis og því á þessi fyrirspurn fullan rétt á sér. Auk þess inniheldur greinargerðin engar sérstakar trúnaðarupplýsingar svo að ég viti til. Ég segi því já.