greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.
Herra forseti. Ég verð að játa að ég skil hvorki upp né niður í þessu öllu saman. Nú skilst mér að það sé samstaða í forsætisnefnd um að birta þessa greinargerð. Hér er farið í einhverja lögfræðilega útúrsnúninga til að rökstyðja það að við fáum ekki aðgang að þessum upplýsingum sem allir eru sammála um að Alþingi eigi að hafa. Þetta er alveg með ólíkindum. Ég átta mig á því að það sem verið er að gera hérna er að meiri hlutinn er að verja sjálfan sig. En ég hef skilið þetta sem svo að við séum öll sammála. Þessi greinargerð var afhent Alþingi, ekki bara forseta Alþingis og ég bara trúi því ekki að það sé í alvörunni þannig og meiri hluti þings ætli að verja það hér að Alþingi sjálft fái ekki aðgang að upplýsingum sem sendar voru Alþingi. Ég verð bara að segja að ég skil ekki neitt. Ég skil ekkert lengur.