greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.
Herra forseti. Auðvitað hljótum við að standa vörð um rétt þingmanna til að kalla eftir upplýsingum um mál sem svo sannarlega er til meðferðar hér í þinginu. Við hljótum að fordæma þá hugsun sem kemur fram hjá þingflokksformönnum meiri hlutans, ekki síst þegar við vitum að þingmenn úr sömu flokkum, reyndar úr öllum flokkum, hafa samþykkt birtingu þessa gagns úr forsætisnefnd. Það er síðan aftur angi af því máli að þegar við erum með gagn sem kemur frá ríkisendurskoðanda, sem vill birta greinargerðina, og það stangast á við skýrslu annars ríkisendurskoðanda, þá hljótum við að virkja eftirlitshlutverk þingsins í því skyni að upplýsa almenning um hvað gekk á þegar eigur almennings voru seldar.