greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.
Forseti. Nú er ég líka formalisti og er stoltur af því. Sitthvað hefur verið sagt hérna sem allir hafa rétt fyrir sér með. Það er rétt að greinargerð setts endurskoðanda uppi í Ríkisendurskoðun er trúnaðargagn en greinargerð setts Ríkisendurskoðanda sem er send Alþingi er það ekki. Þetta eru tvö mismunandi skjöl þó að þau innihaldi sama efni, þau varða mismunandi lagabálka, mjög einfalt. Ríkisendurskoðandi hefur rétt fyrir sér gagnvart eintaki sem er hjá Ríkisendurskoðun, fyrrverandi forseti hefur rétt fyrir sér gagnvart lögfræðiáliti sem er hér í þinginu. Það á að birta það samkvæmt upplýsingalögum, það er mjög skýrt. Þetta er greinargerð setts endurskoðanda sem hann skilar þinginu. Það er ekkert vinnugagn þar á bak við. Það er ekkert flókið við það. Við fengum lögfræðiálit um þetta sem er rosalega skýrt. Í þessu er ekkert sem varðar trúnað og samkvæmt upplýsingalögum á að birta þetta. Þetta er lögfræðiálit sem allir (Forseti hringir.) í forsætisnefnd hafa aðgang að og allir aðrir ættu að hafa aðgang að.