153. löggjafarþing — 72. fundur,  6. mars 2023.

greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.

[17:20]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er ekki nóg fyrir stjórnarliða að lesin sé upp skilgreining forseta sjálfs á því að þetta mál falli undir stjórnsýslu þingsins, samt skal grafið yfir það. Það er heldur ekki nóg að við bendum á að það liggja fyrir lögfræðiálit og niðurstöður í forsætisnefnd um að ekkert standi í vegi fyrir að þetta gagn verði birt og hreinlega að það eigi að birta það, samt skal leyndarhyggjunni haldið áfram.

Hvað varðar þennan útúrsnúning og smjörklípu um að opna aftur á skýrslu ríkisendurskoðanda í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, þá vil ég segja eitt: Greinargerð setts ríkisendurskoðanda er til umræðu vegna þess að blaðamaður óskaði eftir því að fá aðgang að henni og gerir það á grundvelli upplýsingalaga og á grundvelli þess að það á að heita fjölmiðlafrelsi í þessu landi. Það að við getum opnað einhverja skýrslu (Forseti hringir.) þýðir ekki að við getum tjáð okkur eða fengið aðgang með neinum hætti að þessari greinargerð. Hún helst lokuð sem fyrr. Þetta er bara enn einn útúrsnúningurinn og tafarleikurinn. Það á að senda okkur niður aðra kanínuholu þar sem við finnum það sama og alls staðar, ekki neitt og áframhaldandi leyndarhyggju.