153. löggjafarþing — 72. fundur, 6. mars 2023.
greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.
Virðulegi forseti. Ég hef gert grein fyrir þeirri afstöðu minni að það eigi að birta umrædda greinargerð setts ríkisendurskoðanda og fyrir því tel ég vera margvíslegar ástæður. Ég get hins vegar ekki greitt atkvæði með beiðni hv. þingmanns eins og hún er úr garði gerð, andspænis ákvæðum þingskapalaga og segi því nei. Ég geri þarna skýran greinarmun á og bind vonir við að þingleg meðferð málsins upplýsi málið frekar.