153. löggjafarþing — 72. fundur,  6. mars 2023.

greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.

[17:40]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Það er óskiljanlegt fyrirbrigði að það skuli vera leynd yfir þessu máli. Við erum 63 þingkjörnir fulltrúar hérna, einn aðili fær senda greinargerð inn í þingið og getur bara sest á hana og sagt: Nei, við birtum hana ekki. Hún er bara fyrir mig. Ég veit ekki hvað það getur skaðað að birta þessa greinargerð, ég sé á virðulegum forseta að það mun ekki skaða hann. Því ætti það ekki að skaða okkur hin að fá að lesa þessa greinargerð og þessi leynd er gjörsamlega óskiljanleg. Við eigum að sjá sóma okkar í því núna að aflétta þessari leynd. Ég er alveg sannfærður um að það verði enginn heimsendir við það.