153. löggjafarþing — 72. fundur, 6. mars 2023.
greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.
Virðulegi forseti. Það er mín skoðun að það eigi að birta umrædda greinargerð. Ég get þó ekki greitt atkvæði með beiðni hv. þm. Jóhanns Páls Jóhannssonar eins og hún er lögð fram, enda er það minn skilningur að hún fari andspænis ákvæðum þingskapa. Mín skoðun er að meðferð málsins fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd upplýsi málið frekar, það er hinn lagalega rétti farvegur. Því segi ég nei.