153. löggjafarþing — 72. fundur,  6. mars 2023.

greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.

[17:42]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Þessi fyrirspurn brýtur gegn þingskapalögum að því marki að hún varðar stjórnsýslu ríkisendurskoðanda, eins og hér hefur komið fram. (Gripið fram í.) Má ég fá frið til að tala? Mér finnst eðlilegt að beina þessu í eðlilegan, þinglegan farveg og þess vegna fór ég fram á það fyrir hönd meiri hlutans á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á fimmtudaginn að skýrsla Ríkisendurskoðunar um Lindarhvol verði tekin til meðferðar hjá nefndinni á ný og kallaðir verði fyrir nefndina þeir ríkisendurskoðendur sem um ræðir, þessir þrír, og ég vonast til að það verði til að upplýsa málið að svo stöddu.