153. löggjafarþing — 72. fundur,  6. mars 2023.

greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.

[17:48]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Eins og komið hefur fram var þingsköpunum breytt hér skömmu fyrir síðustu kosningar. Ákvæði 2. mgr. 91. gr. þingskapa sem kveður á um að ríkisendurskoðandi og Umboðsmaður Alþingis heyri ekki undir stjórnsýslu Alþingis. Okkur gefst nú færi til að leiðrétta þessi mistök með því að túlka lögin sem svo að þessi tilvísun eigi ekki við þegar litið er til hvaða stjórnsýslu Alþingis þingmenn geta krafist upplýsinga um með skriflegri fyrirspurn, enda segir í lögum um Ríkisendurskoðun: Ríkisendurskoðun starfar á vegum Alþingis.

Ef forseti neitar að taka við fyrirspurn og veita svör um störf Ríkisendurskoðunar, umboðsmanns Alþingis, rannsóknarnefndar — erum við ekki komin í einhverja lagavillu? Er ríkisstjórnin ekki að flækja sig í einhverri lagaþvælu? Við hljótum að þurfa að fara að breyta þessu.