153. löggjafarþing — 73. fundur,  6. mars 2023.

staða framkvæmda í Reykjavík vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

767. mál
[17:56]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ágætt tækifæri til að fara aðeins yfir stöðu framkvæmda vegna samgöngusáttmálans. Fyrst laut spurningin að snjallvæðingu umferðarljósa og öðrum tengdum atriðum. Eitt af verkefnunum í samgöngusáttmálanum er að ráðast í markvissar aðgerðir til að nýta nýjar tæknilausnir og bæta umferðarljósakerfi á höfuðborgarsvæðinu. Það var fengin sænsk verkfræðistofa til að gera óháða úttekt á umferðarljósabúnaði á svæðinu og niðurstaðan varð sú hjá þessum óháða aðila að búnaður sem fjárfest hefur verið í síðastliðin ár sé góður og styðji við snjallar lausnir í umferðarljósastýringu. Það var bent á nokkrar leiðir til úrbóta sem sneru að rekstri kerfisins, möguleikum á að nýta betur þá kosti sem núverandi kerfi og tæknilausnir hafa upp á að bjóða sem og eflingu samvinnu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðarinnar. Til að bregðast við þessum ábendingum var stofnaður samstarfshópur um umferðarljósastýringar sem í sitja fulltrúar veghaldara, þ.e. Vegagerðarinnar og allra sveitarfélaganna. Á þessum vettvangi hefur verið unnið markvisst að sameiginlegri stefnumótun og áherslum í þessum málaflokki. Í apríl 2021 gaf starfshópurinn út fimm ára aðgerðaáætlun sem hefur síðan verið unnið eftir. Eldri ljósabúnaður á höfuðborgarsvæðinu styður hins vegar ekki snjallar lausnir og hefur þess vegna verið unnið að því að skipta honum út undanfarin ár. Staðan á breytingu gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar — eins og þingmenn vita þá liggja þessi gatnamót við jaðar verndarsvæðis Elliðaárdals og samhliða vinnu við gatnamótin er unnið að legu borgarlínu frá Vogastöð að Mjódd. Undirbúningur og hönnun á breytingum gatnamótanna er því umfangsmikið og flókið verkefni. Það þarf að huga vel að náttúru Elliðaárdalsins, umferðaröryggi allra ferðamáta, hljóðvist nærliggjandi byggðar, ásýnd mannvirkja, kostnaði og áhrifum framkvæmda. Í ljósi þessa hafa farið fram greiningar á mismunandi útfærslum gatnamótanna ásamt legu borgarlínu og stígakerfis fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Lögum samkvæmt ber jafnframt að framkvæma mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar sem er í vinnslu. Endanleg útfærsla gatnamótanna mun taka mið af niðurstöðu matsins. Næstu áfangar í undirbúningi þessarar framkvæmdar eru svo forhönnun, verkhönnun og undirbúningur útboðs fyrir verklegar framkvæmdir. Einnig var spurt um stöðu á lagningu Arnarnesvegar og gatnamótanna við Breiðholtsbraut. Þar hefur undanfarin ár staðið yfir vinna við þessa for- og verkhönnun fyrir síðasta áfanga Arnarnesvegar sem nær frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut. Verkhönnun er lokið og þá er gerð deiliskipulags einnig lokið og hafa bæði Reykjavíkurborg og Kópavogsbær veitt framkvæmdaleyfi. Er því reiknað með að framkvæmdin verði boðin út innan tíðar og fyrr en seinna vona ég.

Síðan er spurt um hvenær uppbyggingin hefjist í Keldnalandi. Frá því að Betri samgöngur, sem þingið samþykkti að setja á laggirnar, hófu starfsemi árið 2021 hefur verið unnið að undirbúningi og greiningarvinnu fyrir þróun og uppbyggingu Keldnalands í samstarfi við Reykjavíkurborg. Undirbúningsrannsóknum er nú lokið og alþjóðleg samkeppni um þróunaráætlun fyrir þennan nýja borgarhluta stendur yfir. Gera má ráð fyrir a.m.k. 10.000 íbúa byggð og a.m.k. 5.000 störfum á svæðinu. Niðurstöður samkeppninnar munu liggja fyrir í haust og hefst þá formleg skipulagsgerð. Stefnt er á að deiliskipulag fyrir fyrsta uppbyggingarsvæðið á Keldnalandi liggi fyrir á næsta ári og þá getur væntanleg uppbygging hafist í kjölfarið.

Einnig spurði hv. þingmaður um hvernig leiðakerfi Strætós hefði verið bætt í Reykjavík frá undirritun samgöngusáttmálans. Leiðakerfið er hins vegar ekki hluti samgöngusáttmálans þar sem hann snýr eingöngu að innviðauppbyggingu og getur þar af leiðandi innviðaráðherra ekki veitt upplýsingar um það.

Ég vil svo bara segja að lokum að það er rétt hjá hv. þingmanni að framkvæmdaáætlanir í tímalínu voru nokkuð djarfar þegar þær voru settar af stað. Þeim hefur seinkað. En miðað við það sem ég er að fara hér yfir, eftir að Betri samgöngur sem eiga að sjá um verkið tóku til starfa fyrir tæpum tveimur árum, þá finnst mér við bara komin býsna langt, verandi búin með þrjár stofnvegaframkvæmdir, þá fjórðu á leiðinni í útboð og þá fimmtu langt komna í hönnun.