staða framkvæmda í Reykjavík vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Frú forseti. Það kom dálítið á óvart að hæstv. ráðherra svaraði ekki síðustu spurningunni í fyrirspurn hv. þingmanns á þeim forsendum að samgöngusáttmálinn fjallaði eingöngu um innviðauppbyggingu. Í 6. mgr. 6. gr. sáttmálans er talað um að samhliða stofnun opinbera hlutafélagsins verði festar í sessi skuldbindingar og hlutverk ríkis, m.a. varðandi viðhald og rekstur m.a. almenningssamgangna, og gengið frá fjárhagslegum, lagalegum og tæknilegum atriðum í því sambandi. Þetta verðum við að ræða og þess vegna hefði verið gott að heyra ráðherrann koma aðeins inn á þetta. Við verðum að ræða þetta vegna þess að ef ríkið stígur ekki inn á þetta svið, ef ríkið axlar ekki einhverja ábyrgð með sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar rekstur almenningssamgangna núna strax, ekki bara þegar borgarlínan lítur dagsins ljós, hvernig ætlar ríkisstjórnin þá að ná einhverjum árangri í loftslagsmálum? Þetta er stórlaxinn sem er hægt að ná í samdrætti í (Forseti hringir.) losun gróðurhúsalofttegunda á höfuðborgarsvæðinu. Að ríkið komi inn í rekstur almenningssamgangna strax í dag er eitt stærsta hagsmunamál sem metnaðarfull ríkisstjórn myndi setja á dagskrá.