staða framkvæmda í Reykjavík vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Virðulegi forseti. Ég er þingmaður Suðvesturkjördæmis og keyri reglulega frá Hafnarfirði til Reykjavíkur og ég fer í gegnum hvert sveitarfélagið á fætur öðru sem er undir forystu Sjálfstæðisflokksins og bæjarstjóra sama flokks sem hafa einmitt skrifað undir samgöngusáttmálann. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að hafa farið vel yfir það hvaða verkefni eru núna í gangi. Auðvitað þarf alltaf að fara vel yfir hlutina en það sem við megum ekki gera er að taugaveiklun innan raða Sjálfstæðisflokksins í garð borgarlínu, í garð samgöngusáttmála verði til þess að við stöndum ekki með neitt eftir í höndunum annað en óreiðu á striga. Við höfum ekki efni á því. Við höfum ekki efni á því sveitarfélaganna vegna, íbúanna hér á suðvesturhorninu vegna, ekki vegna loftslagsmálanna. Við þurfum styrk og kraft til að halda þessu áfram og ég treysti því að hæstv. innviðaráðherra hafi sterk bein til að þola þennan atgang og ágang Sjálfstæðisflokksins til að grafa undan annars mikilvægum sáttmála fyrir suðvesturhornið.