153. löggjafarþing — 73. fundur,  6. mars 2023.

staða framkvæmda í Reykjavík vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

767. mál
[18:03]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég tel mig knúinn til að koma hingað upp og segja að þessi óborganlega lína er óborganlegur brandari. Þetta er ófjármagnað. Þetta er skrímsli sem, eins og kom fram hjá hæstv. innviðaráðherra í dag í óundirbúnum fyrirspurnum, á að búa til sérakrein fyrir til þess að það komist áfram, ryðja öðrum frá til að búa til enn þá meiri stíflu. Fólk situr fast í umferðinni kvölds og morgna. Svo er talað um að taka á ljósastýringum. Það virkar ekkert. Það er engin ljósastýring. Ef þú lendir á rauðu ljósi á einum gatnamótum og það kemur svo grænt þá ertu kominn á rautt annars staðar. Það virðist algjört skipulagsleysi vera í þessu og það sem kannski skelfur mann mest er þessi ógurlegi kostnaður sem á að fara í þetta. Hver er niðurstaðan? Við erum með Strætó í dag sem er í bullandi tapi. Hvernig haldið þið að verði með þennan óskapnað þegar hann verður kominn í gagnið?