staða framkvæmda í Reykjavík vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svörin. Ég segi bara það sama við hann og ég sagði við hann í fyrra: Við gerum þá kröfu til stjórnvalda að þau hafi virkt og öflugt eftirlit með því að Reykjavíkurborg standi við samkomulagið sem var gert. Mér heyrist af svörum hæstv. ráðherra að það hafi ekki verið gert í öllu tilliti og meira að segja í stóru tilliti.
Hvað varðar umferðarljósin þá fór hæstv. ráðherra yfir það að m.a. væri unnið að því að skipta út eldri ljósastýringum. Þetta hlýtur að vera með einfaldari verkefnum sem sáttmálinn kveður á um. Þetta er verkefni sem var í forgangi samkvæmt skýrum ákvæðum sáttmálans. Hvernig stendur á því að þessu verkefni er ekki lokið? Var þar virkilega óbreytt áætlun?
Varðandi aðrar framkvæmdir þá er, eins og hæstv. ráðherra fór yfir, auðvitað í mörg horn að líta, m.a. hvernig hönnun og útfærsla stendur og hann fór yfir það að þessi verkefni stæðu ýmist yfir eða þeim væri nýlokið. Áætlanir hafi vissulega verið nokkuð djarfar. Það sem ég hef áhyggjur af er að við höfum skýr ákvæði samgöngusáttmálans um tímasettan forgang ákveðinna verkefna en þau hafa síðan dregist. Reykjavíkurborg getur hreinlega ekki valið hvaða ákvæði hún ætlar að efna og hvað ekki. Það er skýrt samkvæmt ákvæðum sáttmálans.
Virðulegi forseti. Það segir skýrt í sáttmálanum að ef forsendur hans breytist í veigamiklum atriðum sé hægt að óska eftir viðræðum um endurskoðun ákvæða. Er ekki löngu orðið tilefni til þess?