Sundabraut og samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svörin. Mér hefur þótt gott að heyra hvernig hæstv. ráðherra hefur talað um Sundabraut, að hún sé efst á verkefnalista hans, að verkefnið sé komið í traustan farveg, fastar skorður og öruggt ferli og að það séu jafnvel bara örfá ár í að hún verði að veruleika. 2031, sagði hæstv. ráðherra núna rétt í þessu. En ég viðurkenni á sama tíma að ég er tortryggin þar sem hver heilvita maður sér að ekki bara í mörg ár heldur áratugi hafa borgaryfirvöld unnið markvisst gegn lagningu Sundabrautar, samgöngubót sem hefur verið á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar allt frá árinu 1984. Ég spyr því hæstv. ráðherra að því hvort hann muni fylgja því fast eftir að meiri hlutinn í Reykjavík haldi ekki áfram að koma í veg fyrir að Sundabrautin verði að veruleika, hvort við Reykvíkingar getum treyst á hans eftirlit og eftirfylgni. Ef það tekst, ef hæstv. ráðherra tekst að fylgja þessu risamáli eftir, þá er ég þess fullviss um að Sundabrautin muni skipa stóran sess í hans pólitísku arfleifð.