153. löggjafarþing — 73. fundur,  6. mars 2023.

Sundabraut og samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins.

768. mál
[18:22]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Herra forseti. Ég þarf að fá tvær mínútur í viðbót til að svara öllum þessum áhugaverðu kommentum sem komu hér. Það er eðlilegt að það sé tortryggni eftir 40 ára feril en ég minni á að Teigsskógur tók 25 ár og hann er langt kominn. Ég vil líka segja að mér finnst vera talsvert annað hljóð í öllum, ekki síst í meiri hlutanum í Reykjavík, enda held ég að síðustu kosningar hafi snúist um að það yrðu breytingar í Reykjavík.

Varðandi vegstæðið sem tveir hv. þingmenn komu inn á þá hefur það án efa ekki verið nægilega varið í fortíðinni en mér er ekki kunnugt um annað en að það vegstæði sem unnið er eftir nú sé það, að mati Vegagerðarinnar. Ég hef ekki heyrt annað þannig að ég hef ekki trú á að það verði miklar breytingar á vegstæðinu. En auðvitað skiptir máli hvort það verður lág brú, mjög lág brú eða göng. Það eru þeir valkostir sem eru í umhverfismatinu. Mér er einnig kunnugt um, svo ég svari núverandi forseta, að að mati verktakanna og þeirra sem meta það þá telji þeir sig hafa getu til þess að fara í þessi verkefni og að það sé enn of lítið að gera hjá jarðverktökum svo dæmi sé tekið, margt sem bendir til þess samkvæmt fjárhæðum í útboðum.

Ég held að við séum ekki að byrja á öfugum enda eins og hér kom fram. Ég held að við séum einmitt búin að vera að taka réttu skrefin með því að byrja með verkefnahópa. Það hljómar oft eins og við séum að setja einhverja hluti í nefnd en það er oft nauðsynlegt til að koma stórum málum á koppinn. Ég er sannfærður um að Sundabrautin og Sæbrautarstokkurinn — allt verkið er auðvitað gríðarlega umfangsmikið og tekur þó nokkur ár í byggingu og undirbúningurinn þarf þess vegna að vera líka nokkur ár til að hann sé nægilega vandaður. Þetta verður samvinnuleiðarverkefni, svokallað PPP-verkefni, þar sem menn munu greiða til baka á löngum tíma fyrir notkunina. Hluti af fjármögnuninni eru þessi flýtigjöld og umferðarstýring sem hér voru nefnd, þau gjöld. En þau eru ekki bara hluti af fjármögnuninni, þau eru líka hluti af því (Forseti hringir.) að ná fram lausnunum. Og af því að menn hafa oft áhuga á loftslagsmálum og við eigum að hafa hann, þá vil ég minna á að Sundabrautin mun spara 150.000 kílómetra á dag. (DME: Ég skildi þetta sem já.)