greiðslumark sauðfjárbænda.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir að koma hérna í dag og svara fyrirspurn minni um greiðslumark sauðfjárbænda. Við áttum einmitt samtal um sama mál hér fyrr í vetur. Eins og hefur komið fram er greiðslumarkið eini öruggi greiðslugrunnurinn sem sauðfjárbændur hljóta í dag, sama hvort árar vel eða illa, og með tilkomu þess myndaðist söguleg sátt innan stéttarinnar. Hins vegar hefur það lengi verið rætt í samtali sauðfjárbænda og matvælaráðuneytis að ráðuneytið hafi í hyggju að trappa niður greiðslumark fyrir endurskoðun búvörusamninga. Sambærileg áform voru til staðar árið 2019 en þá var hætt við vegna slæmrar afkomu stéttarinnar. Þar steig ráðuneytið mikið gæfuspor í þágu sauðfjárbænda. Slæm staða blasir við bændum þessa dagana, m.a. vegna hækkunar á aðföngum og innflutnings á kjöti frá Úkraínu, rekstrargrundvöllur er erfiður og nýliðun er í lágmarki. Þá væri niðurtröppun greiðslumarks ekki til þess fallin að tryggja enn frekari nýliðun. Því hafa sauðfjárbændur kallað eftir því að öll áform um niðurtröppun verði stöðvuð. Það er fyrirséð að niðurtröppun greiðslumarks kemur til með að koma hart niður á sauðfjárbændum, þá sérstaklega á Austur- og Norðurlandi. Þar er talsverð eign á greiðslumarki og niðurtröppun á greiðslumarki mun koma niður á þeim sem eru að reyna eftir fremsta megni að stunda sauðfjárrækt í atvinnuskyni. Því vil ég benda á að á sama tíma og við eigum hér í þingsal miklar umræður um það hvernig við viljum tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar þá er þetta skref sem við erum að skoða. Í bókun 15.2 í núgildandi sauðfjársamningi kom fram að endurskoða ætti áform um niðurtröppun greiðslumarks skyldi heildarverðmætasköpun greinarinnar ekki aukast um 7,5% að lágmarki, rétt eins og gert var árið 2019. Þessu til stuðnings bendi ég á bókun 15.4 sem segir, með leyfi forseta:
„Síðari endurskoðun skal fara fram árið 2023. Þá skal horfa til sömu þátta og við þá fyrri.“
Í svari við fyrirspurn minni um greiðslumarkið í óundirbúnum fyrirspurnatíma fyrr í vetur sagði hæstv. matvælaráðherra að bændur hefðu ekki eina skoðun á þessu máli og að afstaða þeirra væri klofin. Vil ég því upplýsa hæstv. ráðherra að á nýliðnu búgreinaþingi, sem haldið var 22. og 23. febrúar sl., var samþykkt ályktun um að stöðva eigi niðurtröppun greiðslumarks og breyta búvörulögum þannig að greiðslumark verði ekki lagt niður árið 2026. Ályktunin var samþykkt með 51 atkvæði gegn einu, yfirgnæfandi meiri hluta og sýnir það skýran vilja bænda.
Því spyr ég ráðherra: Hyggst ráðherra trappa niður greiðslumark til sauðfjárbænda fyrir endurskoðun samninga við þá? Ef svo er, hver eru helstu rökin fyrir því að það sé gert þegar stutt er í endurskoðun samninga? Og hver er framtíðarsýn ráðherra þegar kemur að greiðslumarkinu?