153. löggjafarþing — 73. fundur,  6. mars 2023.

greiðslumark sauðfjárbænda.

554. mál
[18:35]
Horfa

Flm. (Ingibjörg Isaksen) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr og greinargóð svör og gott að fá yfirlit yfir söguna af því að hér er um gríðarlega mikilvægt mál að ræða, ekki einungis fyrir bændur heldur fyrir samfélagið allt. Við viljum tryggja fæðuöryggi og styðja við neytendur hér á landi og þurfum að sýna það í verki. Það gerist ekki nema við stöndum með íslenskum bændum og innlendri matvælaframleiðslu. Að fjarlægja eina örugga greiðslugrunn sauðfjárbænda í erfiðu árferði er ekki vænlegt til árangurs með þau markmið að leiðarljósi. Bændur eru ekki að kalla á þetta einungis til þess að bæta sína stöðu heldur til að tryggja að rekstrargrundvöllur sé til staðar svo að hægt sé að halda áfram, gera betur og eins líka laða nýja bændur að greininni. Ég vil ítreka að vilji sauðfjárbænda er skýr og hefur komið fram á mörgum fundum þeirra og, líkt og hæstv. ráðherra kom inn á, verið bókað þess efnis með yfirgnæfandi meiri hluta atkvæða í hvert skipti. Ég vil því nýta tækifærið hér og hvetja hæstv. ráðherra til að hafa þetta í huga þegar kemur til endurskoðunar á búvörusamningum.

Ég ætlaði einnig að nýta tækifærið hér og spyrja hæstv. ráðherra út í tilfærslur milli einstakra liða sem eiga einmitt að vera leyfilegar, allt að 20% árlega á hverjum lið öðrum en beingreiðslum út á greiðslumark. Hæstv. ráðherra fór ágætlega yfir þetta í máli sínu þannig að ég þarf nú ekki að fara frekar út í það. Hins vegar finnst mér afar mikilvægt að nú liggur fyrir að framkvæmdanefnd búvörusamninga hefur vísað stöðvun á niðurtröppun greiðslumarks í gerðardóm og fulltrúar hafa verið skipaðir af hálfu matvælaráðuneytisins og Bændasamtaka Íslands en einnig á Hæstiréttur að tilnefna dómsformann. Mig langaði því að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur oddamaður verið skipaður og hvenær má þá gera ráð fyrir að gerðardómur taki til starfa?