greiðslumark sauðfjárbænda.
Virðulegi forseti. Ég þakka enn hv. fyrirspyrjanda og hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir þátttökuna í þessu samtali. Í fyrsta lagi varðandi skipan gerðardómsins og stöðuna í þeim málum þá er í samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar gert ráð fyrir að aðilar samnings tilnefni hvor fyrir sig einn mann í dóminn og að leita skuli til Hæstaréttar Íslands um að tilnefna formann dómsins nema aðilar komi sér saman um oddamann, eins og stendur í textanum. Í samræmi við ákvæði samningsins var leitað til Hæstaréttar vegna tilnefningar oddamanns en þá benti Hæstiréttur á að í ljósi þess að ekki sé kveðið á um tilnefningu réttarins í lögum geti það ekki komið í hans hlut að tilnefna í gerðardóminn. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að leita til Héraðsdóms Reykjavíkur varðandi tilnefningu og er nú beðið svara frá héraðsdómi.
Hv. þingmaður spurði líka út í stöðuna varðandi endurskoðun búvörusamninga sem er fyrirhuguð á yfirstandandi ári. Það er mikilvægt að það liggi algerlega fyrir að við erum núna í raun og veru inni í þessum meginramma gildandi búvörusamninga til 10 ára og við getum haft áhrif innan þess ramma en þó engar kúvendingar. Þannig að það sem við skoðum fyrst og fremst eru loftslagsmál, fæðuöryggi og síðan að einfalda og skýra kerfið og við höfum gert bændum grein fyrir þessum áherslum.
Loks vil ég segja hér í lok þessarar umræðu að það þarf að vera algjörlega á hreinu að sá landbúnaðarráðherra sem hér stendur stendur með íslenskum landbúnaði, stendur með sauðfjárræktinni, stendur með mjólkurframleiðslunni og stendur með grænmetisframleiðslu og tilraunum og framtíðarsýn í kornrækt. Þetta hefur komið fram með því að ég hef lagt það af mörkum að kalla á sérstakan fjárhagslegan stuðning til bænda vegna álagsins út af stríðinu í Úkraínu og það hefur skilað sér með greiðslum inn í íslenskan landbúnað.