kolefnisbinding.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnirnar um kolefnisbindingu í landi. Landbúnaðurinn er í þeirri einstöku stöðu hvað varðar loftslagsbreytingar að geta bæði dregið úr losun og bundið kolefni, ólíkt flestum öðrum greinum atvinnulífsins. Aukin sérhæfing í þessum málum er fyrirsjáanleg á komandi árum og það liggur fyrir að það þarf að auka framleiðslu á þessari nýju búvöru, ef svo má segja, kolefnisbindingu. Markaðir með þessa vöru eru ófullkomnir, bæði hér og erlendis, því að það er einfaldlega ekki til einfaldur rammi utan um hana. Um þetta var t.d. nokkuð rætt á fundi aðildarríkja loftslagssamningsins í Egyptalandi á síðasta ári þar sem ég var fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Ríkið hefur á undanförnum árum aukið fjárveitingar til verkefna sem leiða til bindingar og varðveislu á kolefni í jarðvegi og gróðri í þágu loftslagsmála. Við þetta hefur atvinnutækifærum sannarlega fjölgað nú þegar og styður það auðvitað við búsetu í dreifbýli á ýmsan hátt, svo sem hjá bændum, öðrum landeigendum, verktökum og starfsmönnum opinberra stofnana. Til lengri tíma hafa þessi verkefni fjölþættan ávinning, svo sem jarðvegsvernd, líffræðilega fjölbreytni, bætt landgæði og skóga til fjölbreyttra nytja.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að útfærður verði rammi um framleiðslu vottaðra kolefniseininga í landbúnaði og annarri tengdri landnotkun. Eins og áður sagði eru kolefnismarkaðir að þróast hér á landi og er framleiðsla vottaðra kolefniseininga hvað lengst komin í skógrækt. Þar eru einkaaðilar að hasla sér völl og á því sviði er mikil þróun, bæði hér heima og erlendis, og það má sjá fyrir sér framleiðslu á vottuðum kolefniseiningum fyrir fleiri aðgerðir eins og bindingu kolefnis í jarðvegi almennt, endurheimt votlendis o.fl.
Af þessu er ljóst að kolefnisbinding í landi getur sannarlega stutt við búsetu í dreifbýli og fjölgað atvinnutækifærum. Ný stefna og aðgerðaáætlun í landgræðslu og skógrækt undir yfirskriftinni Land og líf gerir ráð fyrir að efla þátttökunálgun í undirbúningi og framkvæmd aðgerða í landgræðslu og skógrækt og verður það m.a. gert með því að endurskoða hvatakerfi í landgræðslu og skógrækt. Þar er áætlað að skoða heildstætt stuðningskerfi fyrir landeigendur og félagasamtök, m.a. með hliðsjón af þeim markmiðum og áherslum sem sett eru fram í Land og líf, markmiðum stjórnvalda í loftslagsmálum og fyrir líffræðilega fjölbreytni. Unnið verður að því að samhæfa stuðning í landgræðslu og skógrækt og stuðning í landbúnaði. Þessi aðgerð felur í sér setningu reglugerða í samræmi við 8. gr. laga um landgræðslu og 7. gr. laga um skóga og skógrækt og endurskoðun reglugerðar um skógrækt á lögbýlum, sbr. lög um skóga og skógrækt. Ráðuneytið hefur þegar óskað eftir tillögum, bæði frá skógræktinni og landgræðslunni, að breytingum sem mætti gera á núverandi verkefnum þannig að þau vinni sem best að framtíðarsýn, markmiðum og áherslum þessarar heildarstefnumótunar og aðgerðaáætlunar. Tillögurnar geta falið í sér að endurskoða útfærslu núverandi verkefna, tillögur að nýjum verkefnum og/eða hætta tilteknum verkefnum og meðal slíkra verkefna sem eru í gangi eru t.d. Hekluskógar, Landbótasjóður, skógrækt á lögbýlum, Vorviður, landvöktun innan GróLindar, Hagagæði og verkefnið Bændur græða landið.
Hv. þingmaður spyr loks hvort og hvernig mögulegt væri að samþætta ríkisstuðning við bændur, skógrækt og sölu kolefniseininga á frjálsum markaði. Það þarf auðvitað að skoða frá öllum hliðum hvort og hvernig ríkisstyrktar aðgerðir sem leiða til kolefnisbindingar eða draga úr losun geti falið í sér útgáfu vottaðra kolefniseininga. Á því kunna að vera takmarkanir sem þarf að greina betur og yfirsýn og greining á því stendur yfir. Skilyrði fyrir trúverðugri útgáfu kolefniseininga er að það liggi fyrir viðurkennd vottun á loftslagsávinningi aðgerða. Í þessu felst að verkefni þarf að uppfylla viðurkenndar lágmarkskröfur, m.a. að um sé að ræða mælanlegan og varanlegan árangur, að verkefni leiði ekki til kolefnisleka og að loftslagsávinningur sé til viðbótar því sem hefði orðið án viðkomandi verkefnis og loks að óháður vottunaraðili staðfesti árangur af verkefninu sem liggur að baki kolefniseiningu.
Virðulegi forseti. Ég vona að ég hafi komið inn á spurningar hv. þingmanns í þessari yfirferð en það er alveg gríðarlega mikilvægt að vel takist til varðandi það að ná utan um skráningu og skilgreiningu á kolefniseiningum.