153. löggjafarþing — 73. fundur,  6. mars 2023.

kolefnisbinding.

676. mál
[18:48]
Horfa

Flm. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og auðvitað er þetta gríðarlega umfangsmikið verkefni, eins og hæstv. ráðherra sagði. Það er að mörgu að hyggja og hefðum við getað notað margfaldan tíma til að ræða málið, en vonandi gefast fleiri tækifæri til þess. Það hefur mikið verið rætt um tækifærin sem felast í kolefnisbindingu, hvort sem er með landgræðslu og endurheimt vistkerfa, ræktun skóga eða endurheimt votlendis. Þrátt fyrir það er það mín upplifun að þeim sem vilja taka þátt finnist margt óljóst. Það verður til þess að vinnan við kolefnisbindingu er ekki nægilega markviss og það vinna ekki allar hendur í sömu átt. Þess vegna fagna ég mjög því sem hæstv. ráðherra kom inn á varðandi endurskoðun á þátttökuverkefnum bænda. Ég vil sérstaklega leggja áherslu á að það verði ekki bara kallað eftir tillögum frá Landgræðslunni og Skógræktinni heldur líka frá bændum. Hluti af því sem hefur gerst á síðustu árum þegar báðar þessar stofnanir, sem nú stendur til að sameina, hafa farið í mikla innri vinnu, er að dregið hefur úr samtalinu við bændur sem ég veit að þeir kalla eftir. Það er mjög mikilvægt að fá þá virka að þessu samtali. Eins og ég kom inn á í fyrri ræðu þá er mjög mikilvægt að skýra forsendur skráningar og bókhalds kolefnisbindingar. Það er líka mjög mikilvægt að greina landgæði þannig að það liggi fyrir hvar heppilegast er að binda kolefni, og svo auðvitað að efla samstarfið við bændur. Það eru auðvitað til verkefni sem bændur hafa verið að undirbúa eins og Kolefnisbrúin, sem mér finnst mjög mikilvægt að við nefnum hér, og svo er auðvitað margt fleira sem væri hægt að ræða.