153. löggjafarþing — 73. fundur,  6. mars 2023.

aðgangur fatlaðra að rafrænum skilríkjum.

178. mál
[19:22]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Mér finnst gott að heyra það að Evrópusambandið er svolítið að halda þessari ríkisstjórn við efnið líka þegar kemur að réttindamálum þó að ég viti að það þurfi ekki endilega að halda þessum hæstv. ráðherra við það því að hann hefur sinnt sínu hlutverki vel. Samt sem áður velti ég því fyrir mér, þegar við fórum í þessa miklu vinnu með rafrænu skilríkin af hálfu fjármálaráðuneytisins á sínum tíma, sem ég held að hafi verið fínt framtak, hvernig ráðuneyti hæstv. ráðherra kom inn í vinnuna frá upphafi. Ég skildi ekki af hverju þessum spurningum fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra um hvar þessir einstaklingar gætu fengið þjónustu í kerfinu var ekki svarað samhliða því að gáttin um rafræn skilríki og öll tækni þar var kynnt til sögunnar. Það væri fróðlegt að heyra það. Ég veit af þessum talsmannagrunni og ég held að hann muni nýtast vel. Það er bara ekki alveg farið á fullt af stað og þetta er enn þá pínu óaðgengilegt fyrir okkur sem erum persónulegir talsmenn viðkomandi einstaklinga. En þetta er þó alla vega farið af stað. Ég tek undir líka með hæstv. ráðherra að það skiptir máli — enn og aftur lítur maður svolítið í persónulegan spegil, ég á aldraða en hressa móður sem sér illa og getur ekki gert hlutina sjálf — að samhliða verði svör fengin fyrir eldra fólkið af því að það hlýtur að vera auðvelt að svara samhliða þessum mikilvægu spurningum. Að mínu mati eru þetta eðlilegar kröfur þessara einstaklinga til ríkisvaldsins um að þessari þjónustu sé sinnt. Ég vil sem sagt forvitnast um það hvernig ráðuneyti hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) kom inn í alla vinnuna sem tengist rafrænum skilríkjum frá upphafi. En þakka annars fín svör.