153. löggjafarþing — 73. fundur,  6. mars 2023.

tekjuskerðingar almannatrygginga.

673. mál
[19:35]
Horfa

Viðar Eggertsson (Sf):

Hæstv. forseti. Mig langar aðeins að leggja út frá orðum hv. þm. Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann talar um skattana. Það er með ólíkindum hversu skattalögin og skerðingarákvæði almannatrygginga rekast hvort á annars horn. Í skattalögum njóta almennir borgarar ýmissa frítekjumarka, t.d. vegna ávöxtunar sparifjár sem safnar lágum vöxtum og eins eru leigutekjur eingöngu taldar til tekna að helmingi fjárhæðar vegna þess kostnaðar sem leigusali ber vegna húsnæðisins. En þegar kemur að ellilífeyristakanum þá telst hvoru tveggja að fullu tekjur og skerðir því af fullum þunga lífeyri frá almannatryggingum. Ef ég tek sem dæmi eldri borgara eða jafnvel öryrkja sem vill búa áfram í eigin húsnæði og leigja hluta frá sér, bæði til tekjuöflunar og vegna öryggis, að vera í nálægð við aðra, er það gert illa kleift vegna þessa.