Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

gjaldfrjálsar tannréttingar fyrir börn.

104. mál
[14:11]
Horfa

Flm. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu þingflokks Samfylkingarinnar um gjaldfrjálsar tannréttingar fyrir börn.

„Alþingi ályktar að tannréttingar barna verði gjaldfrjálsar og felur heilbrigðisráðherra að leggja fram frumvarp þess efnis eigi síðar en í maí 2023.“

Svo hljóðar nú umrædd þingsályktunartillaga, herra forseti. Tillaga sama efnis var lögð fram á 152. löggjafarþingi, en áður hafði Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingar, verið fyrsti flutningsmaður samhljóða tillögu á 151. löggjafarþingi.

Með tillögu þessari er lagt til að Alþingi álykti að tannréttingar barna verði gjaldfrjálsar og að heilbrigðisráðherra verði falið að leggja fram frumvarp þess efnis eigi síðar en í maí næstkomandi. Tannréttingar barna heyra undir heilbrigðismál þeirra og telja flutningsmenn óboðlegt að börnum sé mismunað eftir efnahag foreldra og leggja því til að tannréttingar barna verði gerðar gjaldfrjálsar eins og tannlækningar barna sem voru gerðar að fullu gjaldfrjálsar árið 2018. Kostnaður við tannréttingameðferð barns getur hæglega farið yfir 1 milljón króna, ég held að í dag sé kostnaðurinn nærri 2 milljónum, og tekur meðferðin að meðaltali þrjú ár. Foreldrar bera nú kostnaðinn og efnaminni foreldrar veigra sér við að ráðast í tannréttingar barna sinna.

Tann- og bitskekkjur erfast gjarnan innan fjölskyldna og því getur töluverður kostnaður lagst á þær þegar fleiri en einn fjölskyldumeðlimur getur þurft á tannréttingum að halda. Þessi staða er ólíðandi og því er mikilvægt að Alþingi gefi út viljayfirlýsingu um að börnum verði ekki mismunað þegar kemur að tannréttingum.

Samningur Sjúkratrygginga Íslands og Tannlæknafélags Íslands um tannlækningar barna tók gildi 15. maí 2013 með undirritun Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra. Samningurinn var innleiddur í áföngum þar sem markmiðið var að tannlækningar fyrir börn 17 ára og yngri yrðu þeim að kostnaðarlausu að undanskildu árlegu komugjaldi. Til að byrja með tók samningurinn til barna 15, 16 og 17 ára, en svo koll af kolli bættust við fleiri árgangar samkvæmt tímasettri áætlun þar til hann náði til allra barna þegar innleiðingunni lauk að fullu 1. janúar 2018.

Ég minni á að á þessum tíma var Samfylkingin ásamt Vinstri grænum í ríkisstjórn að taka til eftir efnahagshrunið. Engu að síður höfðu þau það hugrekki að koma þessu á.

Samkvæmt samningnum greiða Sjúkratryggingar Íslands nú að fullu fyrir tannlækningar barna, 17 ára og yngri, fyrir utan 2.500 kr. árlegt komugjald. Árið 2021 var gert ráð fyrir að kostnaðurinn verði 2,6 milljarðar kr. en ég er ekki með nýjustu tölur, fyrir 2022. Um 30% af hverjum árgangi nýta sér nú þjónustu tannréttingalækna. Áætla má að kostnaður við gjaldfrjálsar tannréttingar barna geti þannig numið um 1,5 milljörðum kr. sem er langtum lægri en kostnaðurinn við allar tannlækningar barna.

Markmið samningsins um tannlækningar barna er að börn yngri en 18 ára fái nauðsynlega tannlæknaþjónustu óháð efnahag foreldra. Að mati flutningsmanna á slíkt markmið einnig við þegar kemur að tannréttingum barna. Núverandi kerfi mismunar börnum eftir efnahag foreldra enda geta tannréttingar fyrir börn verið mjög kostnaðarsamar og dæmi eru um að meðferðir hafi kostað á aðra milljón króna. Efnaminni foreldrar hafa því augljóslega ekki sömu möguleika og þeir sem meira hafa á milli handanna til að tryggja börnum sínum nauðsynlegar tannréttingar. Að mati bæði núverandi og þáverandi formanns Tannréttingafélags Íslands er nokkuð algengt að foreldrar sjái sér ekki fært að láta rétta tennur barna sinna vegna mikils kostnaðar. Það er því alveg ljóst að félitlar fjölskyldur hafa ekki efni á að senda börn sín í tannréttingar, hvað þá ef mörg börn innan sömu fjölskyldu þurfa á tannréttingum að halda. Í þeim tilfellum þar sem nauðsynlegt þykir að barn undirgangist tannréttingameðferð er langoftast um að ræða bit- eða tannskekkju sem er meðfæddur galli og því ekki hægt að koma í veg fyrir það. Benda má á að hið opinbera greiðir að fullu fyrir aðgerðir til að bæta úr meðfæddum göllum hjá börnum annars staðar í líkamanum en í tyggingarfærum.

Fram til ársins 1992 var í gildi samningur á milli tannréttingasérfræðinga og Tryggingastofnunar ríkisins um endurgreiðslu á tannréttingum. Samningurinn náði til flestra tryggðra sjúklinga með bit- og tannskekkjur og var verulegur hluti af tannréttingakostnaði endurgreiddur. Í ársbyrjun 1992 voru hins vegar sett lög sem bundu enda á allar endurgreiðslur vegna venjulegra tannréttinga. Það þýddi að þeir sjúklingar sem þurftu á tannréttingum að halda fengu um tíma ekkert endurgreitt. Nú greiða Sjúkratryggingar Íslands hins vegar hluta kostnaðar vegna nauðsynlegra tannréttinga samkvæmt ákvæðum IV. og V. kafla reglugerðar nr. 451/2013, en skilyrði er að tannréttingasérfræðingur veiti þjónustuna.

Sjúkratryggingar Íslands veita 100.000 kr. styrk vegna tannréttingameðferðar með föstum spöngum og er nánar tilgreint í þingsályktunartillögunni hvernig þessu er öllu til hagað. Þessi 100.000 kr. styrkur hefur ekki verið uppfærður í 20 ár, þ.e. fjárhæðin. Það er ekki einu sinni haldið í við verðlagsþróun. Flutningsmenn telja því ljóst að þessir styrkir dugi oft skammt, 100.000 kr. eru auðvitað bara dropi í hafið þegar kemur að kostnaði við þetta. Eins og áður segir er kostnaðurinn við tannréttingar barna nærri 2 milljónum.

Ef um alvarlegri tilvik er að ræða þá greiða Sjúkratryggingar Íslands 95% af einhverjum kostnaði, en oft þurfa foreldrar að standa í ströngu við að sanna fyrir Sjúkratryggingum Íslands að barn sem t.d. hefur lent í alvarlegu slysi hefði kannski ekki seinna á lífsleiðinni þurft á einhvers konar á tannréttingum að halda. Þannig að við erum auðvitað að tala um ýmiss konar mismunun.

Veittir eru styrkir fyrir tveimur ferðum vegna tannréttinga á ári en skilyrði fyrir slíkum ferðum er að viðkomandi njóti styrks vegna tannréttinga og þá er þetta auðvitað engan veginn nægilegt.

Það er einnig lagt til að auk nauðsynlegra tannréttinga sem gerðar eru af læknisfræðilegum ástæðum verði aðrar tannréttingar sem tannlæknir metur að bæti lífsgæði barns einnig gerðar gjaldfrjálsar. Auðvitað er ekki gert ráð fyrir að allar mögulegar tannréttingar barna verði gjaldfrjálsar, svo sem þar sem eingöngu er um að ræða útlitslegar tannréttingar eða eitthvað þess háttar. En það þarf alltaf að vera mat sérfræðings að um sé að ræða slíka aðgerð, að það sé nauðsynlegt fyrir barnið. Við vitum jú að mjög mikil skekkja getur einnig leitt til þess að tennur detta hreinlega úr. Það er lögð áhersla á það í tillögunni að heilbrigðisráðuneytið hafi samráð við tannlækna og tannréttingasérfræðinga við samningu frumvarpsins. Þá leggja flutningsmenn áherslu á að gjaldfrelsið taki gildi sem fyrst og eðlilegt markmið væri næsta fjárlagaár. Því er lagt til að heilbrigðisráðherra leggi fram frumvarp eigi síðar en í maí 2023 sem þá gæti fengið afgreiðslu næsta haust vegna fjárlagaársins 2024.

Aðeins varðandi stöðuna á Norðurlöndunum, en þar eru tannréttingar barna styrktar mun meira en á Íslandi. Í Noregi hefur t.d. lengi verið við lýði umfangsmikið endurgreiðslukerfi þar sem kostnaður við tannréttingameðferð er endurgreiddur í samræmi við umfang bit- eða tannskekkju annars vegar og fjölda systkina sem þurfa tannréttingu hins vegar. Þannig er tekið tillit til stærðar fjölskyldna. Ég myndi telja að það væri mjög ákjósanlegt að gera það líka hér. Þar eru þrír endurgreiðsluhópar skilgreindir eftir umfangi skekkjunnar. Er það nánar tilgreint í þingsályktunartillögunni og ætla ég ekki að þreyta þingheim með upptalningu á þessum skilgreiningum sem þar eru.

Það er hægur leikur fyrir hv. velferðarnefnd að fá frekari upplýsingar um fyrirkomulagið á Norðurlöndunum og ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur að reyna að vera einhvers staðar á svipuðum slóðum og norræn velferðarríki af því að við viljum jú á tyllidögum kalla okkur norrænt velferðarríki. Ég held að með samþykkt þessarar þingsályktunartillögu færumst við nær því sem þekkist á Norðurlöndum og nær því að geta kallað okkur norrænt velferðarríki.

Að þessari umræðu lokinni legg ég til að þingsályktunartillagan verði send til hv. velferðarnefndar til meðferðar og vonandi samþykkis.