153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

málefni innflytjenda og vinnumarkaðsaðgerðir.

782. mál
[14:30]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir vegna sameiningar Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs. Hér á landi hefur almennt verið lögð áhersla á að auka tækifæri innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd til félagslegrar þátttöku og virkni í íslensku samfélagi sem og á vinnumarkaði. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á tækifæri sem felast í ólíkum bakgrunni landsmanna og því að nýta þekkingu innflytjenda til að efla íslenskt samfélag. Í því skyni að ná sem mestum árangri í þjónustu við innflytjendur, flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem er á ábyrgðarsviði ráðuneytis míns, er að mínu mati mikilvægt að þjónustan verði sameinuð hjá einni stofnun. Það felur í sér sameiningu Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs.

Með frumvarpinu er því lagt til Vinnumálastofnun taki við hlutverki, verkefnum, réttindum og skyldum, eignum og skuldbindingum Fjölmenningarseturs. Sameiningu Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs er þannig ætlað að ná fram samlegðaráhrifum, m.a. í því skyni að innflytjendur, flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd geti leitað á einn stað vegna þeirrar þjónustu sem þeim stendur til boða og stjórnvöldum er ætlað að veita á málefnasviði ráðuneytisins. Ég tel í þessu sambandi mikilvægt að taka hér skýrt fram að við sameiningu stofnananna tveggja er gert ráð fyrir að allt starfsfólk Fjölmenningarseturs sem er í starfi við sameininguna verði starfsfólk Vinnumálastofnunar, ef það svo óskar. Þó er gert ráð fyrir að embætti forstjóra Fjölmenningarseturs verði lagt niður. Með frumvarpinu er þannig gert ráð fyrir að störf hjá Fjölmenningarsetri verði ekki lögð niður þrátt fyrir að stofnunin verði lögð niður heldur muni starfsfólk Fjölmenningarseturs sem er í starfi við sameiningu stofnananna verða starfsfólk Vinnumálastofnunar.

Ég tel rétt að árétta hér að með frumvarpinu eru ekki lagðar til breytingar á þeim verkefnum sem stjórnvöldum ber að sinna samkvæmt lögum um málefni innflytjenda. Verði frumvarpið óbreytt að lögum bætast því öll þau mikilvægu verkefni sem Fjölmenningarsetur hefur sinnt fram til þessa og falla undir málefnasvið stofnunarinnar við þau verkefni sem falla undir málefnasvið Vinnumálastofnunar á grundvelli ýmissa laga. Er þannig með sameiningu Fjölmenningarseturs og Vinnumálastofnunar gert ráð fyrir að ná megi fram tilteknum samlegðaráhrifum auk þess sem sameining stofnananna er liður í því að einfalda samstarf ríkis og sveitarfélaga í málaflokknum og gera alla þjónustu skilvirkari. Ég geri því ráð fyrir að til verði öflug þjónustustofnun sem m.a. veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd þjónustu auk þess sem stofnunin veiti þeim sem fá verndarveitingu hér á landi eða flytjast hingað til lands á öðrum forsendum aðstoð við inngildingu í íslenskt samfélag.

Virðulegi forseti. Fjölmenningarsetur er ríkisstofnun með aðalskrifstofu á Ísafirði en stærsti hluti starfsfólks stofnunarinnar starfar þó í Reykjavík. Ég tek heils hugar undir það sem fram kom í umsögn Ísafjarðarbæjar við frumvarpið í samráðsgátt stjórnvalda þess efnis að efla þurfi þjónustustöð Vinnumálastofnunar á Ísafirði. Á sama tíma og frumvarpið gerir ráð fyrir að Fjölmenningarsetur verði lagt niður við sameiningu stofnananna tveggja er því stefnt að því að fjölga störfum hjá þjónustustöð Vinnumálastofnunar á Ísafirði og geri ég ráð fyrir að fljótlega eftir sameiningu stofnananna sjái þess stað í starfsemi Vinnumálastofnunar á Ísafirði.

Að mínu mati hefur góður árangur náðst víðs vegar um landið með eflingu starfsemi Vinnumálastofnunar á landsvísu og má þar nefna starfsemi Fæðingarorlofssjóðs á Hvammstanga og greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd. Stofnunin er því vel í stakk búin að efla þjónustustöð sína á Ísafirði. Sem liður í því að tryggja skilvirka þjónustu Vinnumálastofnunar um land allt til lengri tíma litið er jafnframt gert ráð fyrir því í frumvarpinu að lögfest verði að Vinnumálastofnun skuli reka þjónustustöðvar um land allt. Er þá við það miðað að minnst ein þjónustustöð skuli vera á Austurlandi, höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Suðurlandi, Suðurnesjum, Vestfjörðum og Vesturlandi. Vinnumálastofnun rekur þegar þjónustustöðvar í öllum framangreindum landshlutum og felur sú lagabreyting sem hér um ræðir því ekki í sér breytingu á skipulagi þjónustustöðva Vinnumálastofnunar frá því sem nú er.

Virðulegi forseti. Ljóst er að verkefni Vinnumálastofnunar hafa tekið nokkrum breytingum að undanförnu og hefur stofnuninni m.a. verið falið aukið hlutverk í tengslum við þjónustu við flóttafólk og til viðbótar mun stofnunin gegna mikilvægu hlutverki þegar kemur að þjónustu við innflytjendur verði þetta frumvarp að lögum. Auk þess sinnir Vinnumálastofnun afar mikilvægu hlutverki á öðrum sviðum á grundvelli hinna ýmsu laga og er starfsemi stofnunarinnar því orðin afar víðfeðm. Þrátt fyrir að í þessu skrefi sé ekki lagt til að heiti Vinnumálastofnunar taki breytingum til að endurspegla breytt hlutverk stofnunarinnar legg ég samt sem áður mikla áherslu á þau verkefni sem Fjölmenningarsetur hefur fram til þessa sinnt og þau fái nauðsynlegt vægi í starfsemi Vinnumálastofnunar í kjölfar þeirrar sameiningar sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir og mun ég fylgja því eftir við stofnunina verði frumvarpið að lögum. Ég útiloka þó alls ekki þann möguleika að þegar frá líður verði ef til vill tilefni til að skoða hvort til álita komi að breyta heiti stofnunarinnar þannig að það endurspegli betur en nú alla þá fjölbreyttu starfsemi sem fram fer hjá stofnuninni. Ég tel það þó ekki tímabært þar sem mér þykir líklegt að málefnasvið Vinnumálastofnunar eigi eftir að taka frekari breytingum á komandi misserum.

Að lokum legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.