Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

málefni innflytjenda og vinnumarkaðsaðgerðir.

782. mál
[14:39]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er gert ráð fyrir því að með þessari sameiningu verði ákveðin samlegðaráhrif og líkt og hv. þingmaður nefndi sérstaklega er líklegt að skilvirknin aukist, ekki síst vegna þess að í dag erum við með tvær stofnanir að sinna verkefnum sem svo ágætlega geta heyrt undir eina. Að einhverju leyti er um skörun að ræða í starfseminni einfaldlega vegna þess að báðar eru stofnanirnar að þjónusta umsækjendur um alþjóðlega vernd og innflytjendur, hvort sem það er flóttafólk eða aðrir innflytjendur. Það í rauninni kallar á það að færa starfsemina alla undir eina hendi því þá ertu að nálgast þær upplýsingar á einum stað en ekki tveimur, því alltaf er það eitthvað sem fólk spyr um sem kannski heyrir undir tvær stofnanir í dag og er ekki endilega að spyrja réttu stofnunina. Ég held að skilvirknin aukist alveg klárlega. Hvað varðar samlegðaráhrifin þá held ég að það verði ekki mikill sparnaður af sameiningu þessara tveggja stofnana. Þó verður einum forstöðumanni minna, það er kannski meginsparnaðurinn fjárhagslega, en miðað við umfang þessa málaflokks þá getum við ekki séð fyrir okkur að við séum að fækka starfsfólki og sennilega væri það frekar í hina áttina, einfaldlega vegna þess að þessi málaflokkur hefur vaxið það mikið. Ég nefndi hins vegar að við myndum styrkja Vinnumálastofnun á Ísafirði með fjölgun starfa en það er ekki beinlínis tengt þessari sameiningu að öðru leyti en því að höfuðstöðvar Fjölmenningarseturs eru núna á Ísafirði og þess vegna viljum við mæta því, út frá byggðarlegum sjónarmiðum, að efla starfsemi stofnunarinnar á því svæði.