endurskoðun á lagaumhverfi fyrir smávirkjanir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Viðhorf til smávirkjana. Mér finnst almenningur í landinu, alla vega þar sem ég þekki til, nokkuð jákvæður þar sem fólk sér, sem þekkir til þar sem þær hafa verið að rísa, hvað þær skipta miklu máli og hve lítil umhverfisleg áhrif þær hafa í raun. Orkustofnun hefur verið að byggja undir þessa skoðun bæði með rannsóknum og því að taka út svæði, hvar sé möguleiki á virkjunum.
Það er náttúrlega margt í kringum þetta. Eins og hv. þingmaður nefnir er verið að kæra og allt það. Í þessu frumvarpi er ekki verið að taka fyrir neinar kæruleiðir almennings. Þær eru varðar í öðrum þáttum og geta líka verið mikilvægar og skipta máli. Það er bara verið að einfalda það reglukerfi sem snýr að því. Maður hefur talað við þá sem hafa verið að framkvæma og byggja slíkar virkjanir og það er verið svona að ganga á milli Pontíusar og Pílatusar í þessu sambandi og, eins og hefur komið t.d. fram í umræðu um fiskeldi, að samræma svolítið verklag stofnana þegar að þessu kemur. Það skiptir máli í þessu eins og öðru að það sé ekki verið að hefja nýtt ferli við hverja stofnun heldur láta þær svolítið talað saman kannski í þessu ferli.