Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

grunnskólar.

128. mál
[16:50]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fína ræðu og í raun og veru gott mál. Við eigum það sameiginlegt, ég og hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, að vera ekki bara Hafnfirðingar heldur erum við líka FH-ingar og höldum með Liverpool. Það vantar bara að hún gangi til liðs við Framsókn.

Að öllu gamni slepptu þá er margt gott í þessu máli eins og hv. þingmaður fór yfir. Ég get alveg tekið undir ýmislegt og hún beindi því eiginlega að mér þegar hún minntist á Hafnarfjörð og það skref sem við stigum — ég leyfi mér að segja við — á síðasta kjörtímabili sveitarstjórnarmála, að ekkert gjald væri tekið fyrir barn sem er til að mynda í Hjallastefnukerfinu og í sjálfstætt starfandi skóla, sem ég tel í raun og veru bara réttlætismál. Við erum, eins og hv. þingmaður kom inn á, að létta undir með fólki og jafna stöðu íbúa í sveitarfélaginu. En sá hængur er auðvitað á að stólafjöldinn er takmörkuð gæði.

Mig langar þess vegna að spyrja hv. þingmann, til að fá einhverja sýn frá þingmanninum, út í það hvernig við getum brugðist við til að fjölga stólunum og ná þessu á breiðari vettvangi, hvernig við getum jafnað tækifæri meira með því að fjölga og gera það aðlaðandi fyrir sjálfstætt starfandi skóla að koma inn í sveitarfélögin. Ég ætlaði auk þess að koma kannski inn á Reykjavíkurborg í seinna andsvari mínu.