umferðarlög.
Frú forseti. Hv. þingmaður spyr hvort lagasetning þar sem sveitarfélagi er sagt fyrir verkum sé endilega rétta leiðin. Þetta frumvarp breytir því ekkert hvað sveitarfélögum er sagt mikið fyrir verkum vegna þess að sveitarfélögum er í dag sagt fyrir verkum með það að það eigi að vera 50 km hámarkshraði í þéttbýli. Hér með þessu frumvarpi er lagt til að það viðmið sé einfaldlega fært í 30 km. Eftir sem áður þá geti sveitarfélög rökstutt annan hámarkshraða ef aðstæður leyfa eða sveitarfélagið telur ríka hagsmuni mæla með því. Í dag er það þannig, og það er einmitt rétt sem hv. þingmaður nefnir, að flest sveitarfélög eru að stefna í áttina að 30 km á sínum vegum en þurfa þá, t.d. með þennan þráð sem liggur á forræði Vegagerðarinnar í gegnum sveitarfélagið, að eiga í einhverjum miklum samningaviðræðum við þann veghaldara til að ná fram sömu hraðatakmörkunum á þeim búti innan sinna sveitarfélagamarka. Hér er einfaldlega lagt til að í staðinn fyrir að þurfa að rökstyðja allar breytingar frá 50 og niður að 30, sem sveitarfélögin eru að stefna að, þá mætum við sveitarfélögunum hjá 30, þar sem ég held að þau vilji flest liggja. Ef þau vilja fara hærra þá þurfi að rökstyðja það. Það myndi hins vegar, að mig grunar, aðallega lenda á Vegagerðinni sem innan þéttbýlis er veghaldari á þeim umferðarmannvirkjum þar sem hraðinn er mestur. Innan Reykjavíkur ræður Vegagerðin yfir 70 km af vegum og það eru eiginlega allir þeir bútar þar sem hraðinn er hærri en 50 km í Reykjavík.