Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

umferðarlög.

162. mál
[17:54]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé einmitt gott stýritæki varðandi umferðarhraða að geta haft sumar götur með 50 km, sumar 30, ef við viljum stýra umferðinni frekar inn á 50 km göturnar sem liggja kannski fjær íbúðarhverfum þar sem börn eru meira á ferð og annað slíkt. Og varðandi vegi Vegagerðarinnar held ég að það sé nú almennt vilji til að færa þá frá mesta þéttbýlinu, þeir fari til hliðar, þó að það sé umdeilt, en eftir því sem umferðin þyngist meira er vilji til að draga úr umferðinni í þéttbýlinu með því að leiða þjóðveginn fram hjá sveitarfélögunum þannig að inn til þeirra fari einungis sú umferð sem þangað þarf að fara.

Mig langar að spyrja í síðara andsvari hv. þingmann út í það hvort honum finnist það jafn mikilvægt og mér að samgöngurnar verði greiðari þannig að bílar geti keyrt hægar en haldið meiri meðalhraða. Meðalhraði flýtir ferðunum. Ef þú getur haldið meðalhraða þá eru færri sem gefa í og fara hraðar, fara yfir leyfileg hraðatakmörk. Fólk þarf sjaldnar að nota orku til að stöðva og taka af stað. Ég spyr hvort greiðari samgöngur séu ekki líka mikilvægar í þessu, bæði út frá öryggis- og loftslagssjónarmiði. Það þurfa náttúrlega að vera líka greiðar samgöngur fyrir virka samgöngumáta með göngubrúm og undirgöngum og öðru slíku og sérstígum svo að fleiri kjósi að nýta þá. En sama hvaða samgöngumáta fólk velur, er ekki hv. þingmaður sammála því að greiðar samgöngur séu gríðarlega mikilvægar?