153. löggjafarþing — 75. fundur,  8. mars 2023.

180 ára minning tilskipunar um endurreisn Alþingis.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Í dag, 8. mars, er alþjóðlegur baráttudagur kvenna og í dag minnumst við þess einnig að 180 ár eru liðin frá ákvörðun um endurreisn Alþingis.

Þann 8. mars 1843 undirritaði Kristján konungur VIII ,,tilskipun um stiptun sérlegrar ráðgefandi samkomu fyrir Ísland, er á að nefnast Alþing“.

Þannig lauk þátttöku Íslands í stéttarþinginu í Hróarskeldu og landið fékk sína eigin ráðgefandi samkomu. Hið endurreista Alþingi kom saman til fyrsta fundar 1. júlí 1845.