153. löggjafarþing — 75. fundur, 8. mars 2023.
viðvera ráðherra í óundurbúnum fyrirspurnatíma.
Forseti vill geta þess að það er af hálfu ríkisstjórnarinnar sem tilnefnt er í óundirbúinn fyrirspurnatíma, bæði á mánudegi og fimmtudegi, en óskum af þessu tagi er að sjálfsögðu komið til skila. Hins vegar er skilyrði þingskapa eingöngu á þá leið að það sé lágmarksfjöldi í hverjum óundirbúnum fyrirspurnatíma.