153. löggjafarþing — 76. fundur,  9. mars 2023.

vextir og gjaldtaka í sjávarútvegi.

[10:33]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Eins og við vitum eru flestar þjóðir að glíma við verðbólgu og eðlilega eru seðlabankar allra þeirra að hækka vexti. Þetta er allt eftir bókinni og það sama gildir hér. En á hinn bóginn erum við með hærri vexti hér en allar aðrar þjóðir sem eru að glíma við sömu verðbólgu. Og það sem meira er, við þurfum um alla framtíð að búa við tvöfalt og jafnvel þrefalt hærri vexti hér en annars staðar. Gylfi Zoëga hagfræðingur, svo að ég vitni í hann, dró fram og skýrði þennan vanda að við værum í raun þjóð sem væri að nota marga gjaldmiðla og Seðlabankinn hefði bara stjórn á einum þeirra. Þetta sagði Gylfi Zoëga.

Mig langar að fá að heyra frá hæstv. ráðherra hvernig hann skýrir þennan vaxtamun þegar barist er við svipaða verðbólgu og annars staðar. Það var athyglisvert sem ráðherra sagði um hvalrekaskatt sem hún minntist á hér fyrr í vetur en nú sjáum við til að mynda að árs arðgreiðsla Brims jafngildir sjö ára greiðslum auðlindagjalds í ríkissjóð. Formaður Framsóknarflokksins ljáði líka fyrr í vetur máls á aukinni gjaldtöku á sjávarútveg. Þingflokksformaður Vinstri grænna hefur talað um aukinn bankaskatt. Megum við búast við því að sjá breytingar í þessa veru í næstu fjármálaáætlun sem verður lögð fram eftir þrjár vikur? Mun hæstv. ráðherra beita sér fyrir þessum sköttum sem hún nefndi á sínum tíma, hvalrekaskatti og aukinni gjaldtöku á sjávarútveg?

Ég mun síðan aðeins koma inn á þjóðarsátt í seinna svari, spurningu um þjóðarsátt.