vextir og gjaldtaka í sjávarútvegi .
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög góðar spurningar og spurningar sem eiga svo sannarlega við hagstjórnina og þann vanda sem við stöndum frammi fyrir sem er verðbólgan. Hún er óvinur númer eitt þessa dagana á Íslandi. Hv. þingmaður spyr hvers vegna við séum með hærri vexti á Íslandi en til að mynda á evrusvæðinu. Því er til að svara að í fyrsta lagi er mun hærri hagvöxtur á Íslandi en á evrusvæðinu. Í öðru lagi þá er meiri spenna á vinnumarkaðnum en á evrusvæðinu og þar af leiðandi er ekkert óeðlilegt að hér séu þá hærri stýrivextir. Einnig vil ég nefna, og kannski þriðja þáttinn, að einkaneysla hefur verið mikil og meiri en á evrusvæðinu.
Af því að við erum með þennan samanburð við evrusvæðið, sem er mjög mikilvægur vegna þess að evrusvæðið og EES-svæðið eru gríðarlega mikilvæg fyrir öll okkar viðskipti, þá er því til að svara að til að mynda verðbólga í mörgum ríkjum þar, eins og Eystrasaltsríkjunum — ég nefni Eistland, þeim hefur gengið gríðarlega vel en þar er verðbólga 18–19%. Stýrivextir eru ekki háir á evrusvæðinu og fyrir hagkerfi eins og Eistland er ekkert endilega gott að vextir séu þá lægri. Verðbólga er mjög mismunandi eftir því hvaða ríki við lítum á. Ég nefni Eistland. Sums staðar er verðbólgan mun minni en öll hagkerfi heimsins eru að glíma við verðbólgu í kjölfar Covid og aðgerða sem voru mjög vel heppnaðar en það tekur tíma að við náum stöðu þar.
Ég kem að svarinu varðandi hvalrekaskattinn næst.