153. löggjafarþing — 76. fundur,  9. mars 2023.

vextir og gjaldtaka í sjávarútvegi .

[10:37]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Við sjáum vissulega á evrusvæðinu eins og hér að það eru allir að glíma við þessa sömu verðbólgu. Málið er að við sitjum síðan eftir, eins og sagan sýnir, með viðvarandi háa vexti, viðvarandi tvöfalda til þrefalda vexti, hærri vexti hér heldur en annars staðar. Það veikir samkeppnisstöðu okkar Íslendinga. Það þýðir líka að við þurfum að vinna lengur til þess að skapa sömu verðmæti. En ég vil þakka ráðherra fyrir svarið.

Hæstv. ráðherra talaði líka hér fyrr á árinu um verðbólguvæntingar hjá fyrirtækjum, þær væru of háar. Þau verða að hafa trú á að verðbólgan náist niður. Nú sjáum við það að í ársskýrslu eins fyrirtækis sem heldur hluthafafund sinn í dag, er m.a. verið að draga fram að krónan sé helsta ógnin og það er svolítið eins og markaðurinn sé búinn að missa trú á hagstjórninni. Ég myndi vilja fá viðbrögð ráðherra við þessu. Síðan hvort það sé ekki alveg ljóst að ef og þegar við förum í þjóðarsátt, mér sýnist nú ríkisstjórninni ekki veita af þjóðarsátt, þá verði það að ná til allra hópa. Þá verði enginn undanskilinn því að gangast undir þjóðarsátt (Forseti hringir.) og að það verði líka farið af einurð í það að ná aga á útgjaldaþenslu ríkisstjórnarinnar.