vextir og gjaldtaka í sjávarútvegi .
Virðulegur forseti. Þegar við erum að ræða um vexti og verðbólgu þá endurspegla vextirnir iðulega það hagkerfi sem þeir starfa í. Ekki er hægt að rjúfa þetta samband. Ég tel stundum, þegar við erum að ræða um vaxtastig, að það sé svo mikilvægt að við skoðum þær aðstæður sem eru í viðkomandi hagkerfi. Eins og ég nefndi hér í mínu fyrra svari er mjög mikill hagvöxtur á Íslandi og við höfum alveg sýnt að við erum hagkerfi sem er að vaxa mjög mikið og það er mjög jákvætt. En ég deili því með hv. þingmanni að auðvitað er það slæmt þegar vaxtastigið er svona hátt, en til þess að ná vöxtunum niður þurfum við að ná niður verðbólgu. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að ná sátt um þá stöðu sem við erum í. Ég hef verið að horfa til einhvers sem myndi heita stöðugleikasáttmáli þjóðarinnar og við verðum að komast á þann stað. Ég deili því líka með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að allir taki þátt í því. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður nefndi hugmyndir um hvalrekaskatt. Já, ég er svo sannarlega enn á því til þess að mynda þá sátt sem nauðsynleg er í samfélaginu okkar.