fátækt barna á Íslandi.
Virðulegur forseti. Fátækt barna hefur aukist og tekið á sig nýja mynd á Íslandi. Ljósmæðrafélag Íslands auglýsir eftir fatnaði fyrir nýbura, 0–6 mánaða, sérstaklega eftir utanyfirflíkum, ungbarnateppum, barnastólum og vöggum. Þá kemur fram hjá formanni Félags ljósmæðra að áður hafi einungis verið um eina og eina konu að ræða sem ekki ætti fatnað og aðrar nauðsynjar fyrir nýfædd börn sín en nú sé fjöldinn orðinn svo mikill að eitthvað meira sé að gerast. Brýnust er þörfin fyrir fatnað, utanyfirflíkur, teppi og barnabílstóla.
10.000 börn á Íslandi búa við fátækt. 13,1% barna býr við fátækt á Íslandi samanborið við 12,7% árið á undan. Þetta kemur fram í nýjustu skýrslu Barnaheilla. Þar kemur einnig fram að Barnaheill leggja áherslu á að uppræta þurfi fátækt meðal allra barna. Þá kemur einnig fram það sem við í Flokki fólksins höfum ítrekað haldið fram: Eitt barn sem elst upp í fátækt á Íslandi er einu barni of mikið. Í skýrslunni kemur einnig fram að árið 2021 áttu 24,1% íslenskra heimila í erfiðleikum með að standa straum af daglegum útgjöldum, hvað þá að ná endum saman. Þá er rúmlega helmingur tilfella heimili einstæðra foreldra, ríflega 16% voru heimili fullorðinna með börn og þá eru einnig meiri líkur á að börn utan höfuðborgarsvæðisins búi við fátækt, eða 15,8% þeirra.
Verðbólga á Íslandi í lok febrúar 2020 var 10,2% og hækkun vaxta olli greiðslubyrði af húsnæðislánum sem var að sliga ungar fjölskyldur og leiguverð var í hæstu hæðum. Matur, fatnaður og annar framfærslukostnaður hefur stórhækkað og þá á eitt af hverjum fimm börnum sem búa í leiguhúsnæði á hættu að búa við fátækt og 8,2% búa við skort. Þetta kemur einnig fram í skýrslunni.
Stefnuleysi stjórnvalda til að uppræta fátækt meðal barna á Íslandi er algjört. Það að vernda ekki og tryggja öllum börnum á Íslandi jöfn tækifæri til góðrar heilsu með heilnæmum mat og þátttöku í tómstundum og jöfn tækifæri til menntunar er skýlaust brot á mannréttindum þeirra sem gerir þau hornreka í íslensku samfélagi, í fátækt í boði ríkisstjórnarinnar. Ætlar ríkisstjórnin að vakna og fara að gera eitthvað í sambandi við fátækt, hæstv. forsætisráðherra?