153. löggjafarþing — 76. fundur,  9. mars 2023.

fátækt barna á Íslandi.

[10:42]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir þessa fyrirspurn. Það er hins vegar ekki svo að ekki hafi neitt verið að gert í þessum málum. Frá upphafi þessarar ríkisstjórnar hefur verið gripið til markvissra aðgerða til að auka jöfnuð í samfélaginu og þar eru stórar aðgerðir sem hefur verið gripið til. Nærtækast er að nefna breytingar á skattkerfi í þágu hinna tekjulægstu, eflingu barnabótakerfisins sem spilar að sjálfsögðu beint saman við það sem hv. þingmaður er að nefna. Aukin áhersla á félagslegt húsnæði og ég rifja það upp hér að af því húsnæði sem hefur verið byggt á undanförnum árum er hátt í þriðjungur byggður vegna aðgerða stjórnvalda. Ég held að við hljótum að vera sammála um það í þessum sal að húsnæðismálin eru auðvitað risastór þáttur þegar kemur að lífskjörum almennings í þessu landi. Þá hef ég ekki minnst á þær breytingar sem hafa verið gerðar á almannatryggingakerfinu sem allar hafa miðað að því að styðja sérstaklega við þau tekjulægstu í þeim hópi.

Þegar við skoðum stuðning við barnafjölskyldur á Íslandi í alþjóðlegum samanburði þá er hann óvíða meiri en hér á landi. Nýleg alþjóðleg rannsókn sem var birt sýndi að óvíða er betra að vera foreldri með barn en hér á landi, hvort sem við tölum þá um fæðingarorlofskerfið sem er auðvitað einstakt í alþjóðlegu samhengi, leikskólakerfið og þegar við skoðum OECD-ríkin eru það einungis Svíþjóð, Lúxemborg og Danmörk sem verja meiru en Ísland í stuðning við barnafjölskyldur, af því hv. þingmaður spyr sérstaklega um það. Hér er því ekki hægt að tala um stefnuleysi.

Við höfum hins vegar verið að horfa til þess hvað hægt sé að gera meira út frá þeim rannsóknum og gögnum sem við höfum og þar hefur til að mynda verið bent á þætti eins og ókeypis skólamáltíðir sem þyrfti að gerast í samráði við sveitarfélögin. Ríkið hefur komið inn með mjög myndarlegum hætti í stuðningi við tómstundastarf, sérstaklega til tekjulægri fjölskyldna til að tryggja að þau börn hafi líka aðgang að tómstundastarfi.