153. löggjafarþing — 76. fundur,  9. mars 2023.

fátækt barna á Íslandi.

[10:45]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin. En þrátt fyrir allt sem þið hafið verið að gera eykst fátæktin. Hvers vegna skyldi það nú vera? Þetta er skýrsla frá 2021. Nú er komið árið 2023, 10,2% verðbólga. Og þið hafið gert svo mikið, skattalega, barnabætur og fleira. En að gefa með vinstri hendinni og taka með hægri skilar fólki í fátækt. Það þýðir ekki að segja að það sé verið að gefa með vinstri hendinni og hækka ákveðna málaflokka en á sama tíma minnka ekki skerðingar, auka ekki frítekjumörk. Þetta er dulbúinn skattur. Í þessu samhengi má benda á að ríkisstjórnin náði 650 milljónum af öryrkjum og eldri borgurum í lægstu hópunum, af sparnaði þeirra, sem var hreint og klárt tap. Það var ekki ávöxtun heldur töpuðu þau ávöxtun. Þeir gerðu það þannig að þeir tóku enn þá meira af þeim. Ég spyr: Er ekki kominn tími til að finna út og reikna út lágmarksframfærslu í þessu landi? Á meðan við höfum hana ekki, lágmarksframfærslu sem dugir til að fólk geti lifað af og börn þurfi ekki að vera í fátækt, þá er meira en lítið að í okkar samfélagi og það er löngu tímabært að sjá til þess að ekkert barn þurfi að lifa í fátækt. Við eigum að geta það í okkar ríka landi. Við erum með forstjóra með 7,1 milljón að meðaltali í laun og við erum að láta þá fá 60.000 kr. í persónuafslátt sem er 180.000–190.000 kr., sem er 2% af þeirra launum. Þeir þurfa það ekki. Látum þá fátæku fá þetta og útrýmum fátækt.