153. löggjafarþing — 76. fundur,  9. mars 2023.

fátækt barna á Íslandi.

[10:47]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Mig langar að halda áfram þar sem frá var horfið af því að töluvert hefur verið talað um skort á tómstundum. Stuðningurinn sem ég vísaði til áðan kom inn sem hluti af Covid-aðgerðum stjórnvalda og í stjórnarsáttmála eru fyrirheit um að þetta verði áfram skoðað, sérstaklega stuðningur við tómstundir tekjulægri barna, því að þetta er eitt af því sem hefur verið bent á.

Það var ágæt skýrsla gefin út 2016 um þessi mál þar sem var bent á helstu þætti í þessum málum. Þar var talað um að brúa umönnunarbilið. Hvað hefur ríkisstjórnin gert? Hún lengdi fæðingarorlofið og hækkaði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Þar var talað um tilfærslu til einstæðra foreldra og ég nefndi bæði barnabótakerfið og húsnæðisstuðninginn hér áðan. Ég nefndi skólamáltíðirnar líka og svo að sjálfsögðu almannatryggingakerfið þar sem við höfum verið að grípa til ráðstafana. En mig langar líka að nefna að undir forystu mennta- og barnamálaráðherra er auðvitað verið að vinna að innleiðingu farsældarlaganna og Barnvæns Íslands, sem er samþykkt áætlun hér í þinginu, þar sem ætlunin er að horfa sérstaklega til efnahagsstöðu. Vegna þess að hv. þingmaður lauk sínu máli á markmiði sem ég held við getum alla vega flest verið sammála um — að útrýma fátækt — þá er unnið að skýrslu í forsætisráðuneytinu að beiðni hv. þm. Halldóru Mogensen um fátækt á Íslandi og samfélagslegan kostnað. (Forseti hringir.) Ég á von á því að henni verði lokið núna á vormánuðum og þá fáum við enn frekari gögn til þess að ná árangri. (Forseti hringir.) En svo sannarlega hefur ríkisstjórnin verið að vinna að þessu markmiði.