153. löggjafarþing — 76. fundur,  9. mars 2023.

aðgerðir stjórnvalda gegn fátækt.

[10:54]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Það er einmitt mikilvægt að við horfum á það sem hefur verið gert því að við erum svo sannarlega ekki á núllpunkti. Hv. þingmaður ræðir hér um heilbrigðiskerfið, en þá verð ég líka að segja að það má ekki horfa fram hjá því að það var þessi ríkisstjórn sem fór í markvisst átak; áætlun um að draga úr kostnaði sjúklinga í heilbrigðiskerfinu. Markmiðið er að koma okkur á par við Norðurlöndin og það er að ganga eftir. Við þetta höfum við haldið okkur og auknir fjármunir hafa verið settir í þetta í hverjum fjárlögum undanfarin ár til þess að ná þessum kostnaði niður. Sama má í raun og veru segja um fjárveitingar til heilbrigðiskerfisins almennt.

Síðan vil ég segja og get ekki stillt mig um það, að hér höfum við auðvitað oft tekist á um ákvæði í stjórnarskrá um auðlindir þjóðarinnar. Stundum hefur mér þótt sú umræða fara að snúast um smærri atriði í þeim málum og nákvæmar útfærslur. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það væri mun betra ef við hefðum getað komið okkur saman um að árétta í stjórnarskrá þjóðarinnar ákvæði um sameiginlega auðlind allrar þjóðarinnar. (Forseti hringir.) Það væri óskandi að við gætum náð því. (Gripið fram í.) Af því að hv. þingmaður talar um þetta kjörtímabil, þá værum við komin á betri stað í þessum málum ef við næðum saman um slíkt mikilvægt ákvæði.