kostnaður landsbyggðarfólks vegna bálfara.
Virðulegur forseti. Sú tala sem hér er nefnd, 1,2 milljarðar til að reisa bálstofu, er ekki varðandi þessa ofna og þá tækni sem þarf til að vera með líkbrennslu. Þar er í raun verið að tala um byggingu á einhvers konar útfararstofu og þá þjónustu sem veitt er í kringum þetta. Kostnaður við ofnana sjálfa er kannski mismunandi eftir því hvað er keypt en við getum sagt að hann liggi kannski í kringum 100 milljónir til eða frá. Síðan hafa mér borist ábendingar um það, frá aðilum sem þekkja til á þessum markaði, að jafnvel geti verið um miklu ódýrari einingar að ræða. Það er það sem mér finnst við þurfa að skoða, hvort hægt væri að koma upp aðstöðu sem gæti fullnægt þjónustu í þessum efnum víðar um land. Þá væri mögulegt að gera það í einhvers konar samstarfi við sveitarfélögin eða landshlutana og þannig værum við að mæta þessari þörf á þeim svæðum.
Ég held að þetta sé eitthvað sem við verðum að horfa til. (Forseti hringir.) Ég er nýbúinn að fá skýrslu. Það eru önnur sjónarmið sem liggja því líka til grundvallar að bjóða upp á þessa þjónustu úti á landi, eins og ef upp koma alvarlegar farsóttir þar sem skyldan verður að brenna lík.